Sem fyrr hefur verið þétt setinn bekkurinn núna á haustönn á íslenskunámskeiðum fyrir fólk af erlendum uppruna. Í það heila hafa verið haldin á þriðja tug námskeiða á önninni, flest í húsnæði SÍMEY við Þórsstíg en einnig hafa verið í boði fjarnámskeið þar sem námsefninu og upplýsingum er miðlað á netinu.