Nám í stuðningsfulltrúa- og leikskólaliðabrú er fyrir ófaglærða starfsmenn í leik- og grunnskólum.
Námið er samtals 66 einingar sem kenndar eru á fjórum önnum. Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar og/eða stuðningsfulltrúar að námi loknu.
Innihald námsins er félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði kennslufræði.
Forkröfur í námið eru að nemendur hafi náð 22ja ára aldri, hafi 3ja ára starfsreynslu við uppeldi og umönnun barna í leik- og grunnskólum og hafi lokið 230 kennslustunda starfstengdum námskeiðum. Þátttakendum er boðið upp á raunfærnimat í upphafi náms, sem getur þá komið til styttingar á náminu.
Fyrirkomulag náms: Námið er byggt þannig að hver áfangi er kenndur í fjórar til fimm vikur í senn. Námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta (á netinu) í fyrsta tíma hvers áfanga svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið.
Námsmenn hafa aðgengi að kennara einu sinni í viku í hverjum áfanga á milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.
Námsmat: Námsárangur er metinn með símati, þ.e. nemandi skilar inn verkefnum sem metin eru til einkunna og er einkunn gefin í tölustöfum. Hægt er að fá hluta áfanga metna í gegnum raunfærnimat og biðjum við þá sem þess óska að hafa samband við umsjónarmenn námsins, Helenu (helena@simey.is) eða Önnu Maríu (annamaria@simey.is).
Fög kennd á vorönn 2025 (birt með fyrirvara um breytingar):
Verð: 47.000,- hver önn (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.
Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en 14 daga fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum !
Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú samanstendur af eftirtöldum fögum (með því að smella á hvert fag má lesa sér til um námsmarkmið):
Fatlanir 2A05
Hegðun og atferlismótun 2A05
Leikur sem náms- og þroskaleið 2A05
Íslenskar barnabókmenntir 2C05
Skapandi starf 1A05
Samskipti og samstarf 1A05
Þroskasálfræði 3A05
Gagnrýnin hugsun og siðfræði 2A05
Upplýsingatækni 1A05
Kynjafræði 2A05
Skyndihjálp 2A01
Uppeldisfræði 2A05 og 3A05
Þroski og hreyfing 2A05
Kennslustofan og nemandinn 2A05