SÍMEY býður upp á Fræðslustjóra að láni í samvinnu við starfsmenntasjóði. Verkefnið byggist á að lána ráðgjafa til fyrirtækja, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun. Ráðgjafinn fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál fyrirtækisins, dregur fram það sem vel er gert og gerir í framhaldinu greiningu á þörfum fyrirtækisins.
Hægt er að sækja um styrk að fullu fyrir verkefninu og starfsfólk SÍMEY getur aðstoðað við umsóknina.
SÍMEY hefur mikla reynslu í gerð þarfagreininga fyrir bæði lítil og stór fyrirtæki. Stuðst er við þarfagreininguna Markviss sem er greiningaraðferð til að vinna að starfsmannaþróun í fyrirtækjum og stofnunum. Greiningin er unnin í samstarfi við stjórnendur og starfsmenn sem gefst kostur á að meta þekkingar- og færniþörf innan fyrirtækisins og skipuleggja uppbyggingu og fræðslu í samræmi við matið.
Ávinningur fyrir fyrirtæki/stofnanir er m.a.:
Ávinningur fyrir starfsfólk:
Frekari upplýsingar varðandi þarfagreiningar gefur:
Ingunn Helga, s.4605720 og ingunn@simey.is