Stutt námskeið þar sem er farið í grunninn á þrívíddarprentun og hönnun. Eiginleikar, möguleikar, kostir og gallar 3D prentunar skoðaðir.
Íhlutir 3D prentara skoðaðir sem og sértæk forrit.
Tilbúin módel skoðuð og nemendur búa til einföld módel og útfæra fyrir prentun.
Leiðbeinandi: Árni Björnsson, FABLAB Akureyri
Tími: 4 klst, tvö skipti
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|---|---|---|---|---|---|
FaBLab - 3D prentun | 16. mar | Sunnudagur | 10:00-14:00 | FabLab í VMA | 24.900 kr. | Skráning |