Hvað viltu vita um huldufólk? - Vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Farið verður yfir sögu huldufólks allt frá landnámi. Þjóðsögur skoðaðar í samhengi við frásagnir sjáenda.

Aðkoma huldufólks að náttúruvernd og vegagerð og nýlegar sögur af Norðurlandi.

Einnig verður fjallað um álagabletti, náin kynni við mennskar persónur, gjafir, drauma og margt fleira. Umræður og spurningar í lok námskeiðs. 

Leiðbeinandi: Ingunn V. Sigmarsdóttir, kennari, þjóðfræðingur og skáld 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi. 

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Hvað viltu vita um huldufólk? Vefnámskeið 27. nóv Miðvikudagur 17:00-19:00 Vefnámskeið á ZOOM 12.900 kr. Skráning