Þinn eigin jólakrans

Flokkur: námskeið

Verklegt námskeið um kransa og kransagerð þar sem þátttakendur læra að vefja sinn eiginn jólakrans.  

Á námskeiðinu verður fræðsla um blómakransa í gegnum tíðina.  Kennd verða undirstöðuatriði og tækni við að vefja krans í fallegt handverk. Þátttakendur fá aðstoð og kennslu við að binda sinn eigin krans og verða fær um að gera sína eigin kransa. 

Áhersla er á að nota hráefni úr náttúrunni eins og unnt er. 

Hráefni í krans er innifalið í námskeiðinu og þátttakendur fara heim með sinn krans í lok námskeiðs. 

Leiðbeinandi: Alma Lilja Ævarsdóttir blómahönnuður. Eigandi blómaverkstæðisins Salvíu. 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi. 

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Jólakransanámskeið á Akureyri 19. nóv Þriðjudagur 17:00 - 19:00 SÍMEY Þórsstíg 4 27.500 kr. Skráning
Jólakransanámskeið á Dalvík 20. nóv Miðvikudagur 17:00 - 19:00 Námsver SÍMEY á Dalvík 27.500 kr. Skráning
Jólakransanámskeið á Siglufirði 21. nóv Fimmtudagur 17:00 - 19:00 Siglufjörður 27.500 kr. Skráning