Ítarlegt námskeið þar sem rætt verður um lífeyrismál og fjármál á efri árum með sérstakri áherslu á hvað yngra fólk getur gert í dag til að bæta stöðu sína síðar á lífsleiðinni.
Meðal þess sem um verður rætt er:
Hvernig við getum bætt fjárhag okkar síðar á ævinni til muna
Hvernig möguleg samsetning tekna getur verið
Greiðsla lífeyris og hvenær best er að sækja um hjá lífeyrissjóðum
Hlutverk viðbótarlífeyris og annarar séreignar
Möguleiki á hlutastarfi og töku hálfs lífeyris
Greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar
Fjárhagslegt öryggi maka og barna
Eignir og skuldir
Fyrir hverja: Námskeiðið hentar öllum sem ekki hafa þegar sótt um lífeyri, ekki síst þeim sem eru yngri en 60 ára. Því yngri sem þátttakendur eru, því meira geta þeir tileinkað sér í dag til að bæta úr fjárhagslegri stöðu sinni á lífeyrisaldri.
Engin þekking á málaflokknum er nauðsynleg.
Ávinningur: Afar mikill fjárhagslegur ávinningur getur fólgist í því að undirbúa fjármál á lífeyrisaldri snemma. Með góðum undirbúningi má klæðskerasníða starfslokin með þeim hætti að við njótum fjármuna okkar sem best og lágmörkum líkur á mistökum.
Hvar og hvenær: 19. mars- vefnámskeið 17:00-19:00
Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans. Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði. Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar.
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|