Eingöngu ætlað starfsfólki sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Losunarbókhald gefur sveitarfélögum yfirsýn yfir losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni og er gagnlegt tól til að leggja mat á kolefnisspor til að hægt sé að draga úr því á markvissan og hagkvæman hátt.
Losunarbókhaldið er meginliðurinn í grænu bókhaldi sem æskilegt er að sveitarfélög sem eru þátttakendur í Grænu skrefunum standi skil á auk þess sem þetta er lykilatriði til þess að uppfylla ákvæði í lögum um loftslagsmál.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu hugtök og aðferðafræði Greenhouse gas protocol (GHG-protocol) kynnt. Leiðarvísir GHG-protocol er í notkun víða um heim til að reikna losun frá rekstri og byggir losunareiknir í verkfærakistu sveitarfélaganna á þeirri aðferðafræði.
Farið verður yfir ávinninginn af því að halda slíkt bókhald fyrir sveitarfélög, hvaða gögnum þarf að safna og gagnlegar venjur til þess að einfalda gagnasöfnun.
Fyrirkomulag: Fræðsla í rauntíma í gegnum Zoom.
Tímasetning: 28. febrúar kl 10:00-12:00
Markhópur: Starfsfólk sveitarfélaga sem vinnur á fjármáladeildum og/eða að Grænum skrefum í loftlagsmálum.
Leiðbeinandi: Ólöf Lovísa Jóhannsdóttir, Ráðgjafi á sviði umhverfis og nýsköpunar hjá SSNV
Frekari upplýsingar varðandi LOFTUM námskeið veita:
Kristín Björk - 460-5724 - kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - ingunn@simey.is
Hilmar Valur - 464-5100 – hilmar@hac.is
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|