Peppandi og strangheiðarlegur fyrirlestur um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu.
Kristján Hafþórsson fjallar um jákvæðni og heiðarleika með vonina að vopni og það að sjá aðstæðurnar sem hálffullt glas en ekki hálftómt.
Fyrirlesturinn hentar öllum því hann fjallar í grunninn um það sem við erum öll að kljást við frá degi til dags.
Leiðbeinandi: Kristján Hafþórsson, félagsfræðingur og stjórnandi hlaðvarpsins “Jákastið”.
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|---|---|---|---|---|---|
Peppandi - Vefnámskeið | 18. feb | 17:00-18:00 | Vefnámskeið | 12.900 kr. | Skráning |