Þjónar útisvæðið þínum þörfum og gefur hún rétta mynd af heimilinu? Á námskeiðinu verður farið yfir ýmislegt sem viðkemur heimreiðinni og því útisvæði sem tilheyrir heimilinu, s.s. svalir, pallur, o.s.frv.
Aðkoman skiptir miklu máli því segja má að hún sé andlit heimilisins og því það fyrsta sem gefur fólki hughrif þegar það kemur að heimilinu okkar. Hvað er það sem laðar fólk að?
Á góðum sumrum er hvergi betra að vera en úti við og því skiptir máli að hafa umhverfið bæði fallegt og þægilegt. Það er auðvelt að gera fallegt í kringum sig með þægilegum húsgögnum sem henta flestum tilefnum, með lýsingu, plöntum og öðrum hlutum.
Ávinningur þinn:
Þetta námskeið er fyrir alla þá sem hafa áhuga á að fegra umhverfi sitt og vilja að íverustaðirnir uppfylli þarfir íbúanna.
Leiðbeinandi : Emilía Borgþórsdóttir er iðnhönnuður, starfar á breiðum vettvangi og hefur haldið ótal mörg námskeið.
*Félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðin sér að kostnaðarlausu.
Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|