Að bæta/auka skilvirkni í einkalífinu

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Athugið þetta námskeið er haldið sameiginlega með stéttarfélögum á svæðinu og því verða ekki eingöngu starfsmenn HSN á námskeiðinu. 

Á þessu 2 klukkustunda námskeiði mun Viktoría fara yfir hvernig er hægt að nota umbóta hugmyndafræði  í persónulega lífinu til þess að ná meiri skilvirkni og árangri. 

Umbóta hugmyndafræðin hefur verið nýtt í fyrirtækjum erlendis og á íslandi síðustu ár með mjög góðum árangri. Þetta námskeið mun fara yfir hvernig er hægt að nýta þau tól og tæki sem  hugmyndafræðin býður upp á heima hjá sér og í einkalífinu. 

Á þessu námskeiði verður farið yfir ýmis verkfæri sem hjálpa þér að ná betri yfirsýn yfir verkefni heimilisins, meiri skilvirkni og skipulagningu ásamt bættri tímastjórnun. 

Leiðbeinandi: Viktoría Jensdóttir starfar sem forstöðumaður verkefna og stefnumótunar á framleiðslusviði Össurar. Hún hefur starfað að stöðugum umbótum (lean) í yfir 15 ár í mismunandi iðnuðum m.a. hjá Alcoa, Össuri, Símanum og Landspítalanum. Ásamt því hefur hún kennt stöðugar umbætur hjá Háskóla Íslands og Opna háskólanum. 

 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Að bæta/auka skilvirkni í einkalífinu 14. nóv Fimmtudagur 17.00-19.00 Vefnámskeið Skráning