Dreymir þig um að gera eldhúsið að þínu með einföldum breytingum? Aðstaða og vinnuskipulag skipta öllu máli þar sem við eyðum góðum hluta úr deginum í eldhúsinu. Innréttingar og fyrirkomulag á að auðvelda þér verkin og ýta undir sköpunarkraftinn til þess að þú getir töfrað fram frábærar máltíðir og góðar minningar.
Á námskeiðinu verður farið yfir skipulag og fyrirkomulag eldhússins og hvaða þætti þarf að hafa í huga þegar farið er í stórar eða smáar framkvæmdir. Þetta er námskeið fyrir þá sem vilja gera einfaldar breytingar en stórar útlitslega sem og þá sem vilja gjörbreyta eldhúsinu og ætla í viðamiklar aðgerðir.
Farið verður yfir grunnþætti hönnunar og skoðað hvað þarf að hafa í huga til að aðstæður henti öllum þeim verkefnum sem til falla í eldhúsinu, hvort sem það eru stórveislur, mánudagspastað, vinna við eldhúsborðið eða huggulegheit o.fl. Gæta þarf að mörgu, svo sem lýsingu, góðri loftun og góðu skipulagi.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Góða vinnuaðstöðu.
Hvað þarf fyrir gott skipulag.
Mismunandi lýsingu við hin ýmsu verkefni.
Hvað litir geta gert fyrir rýmið.
Stemmingu og val á húsgögnum.
Loftun, því eldhúsið krefst góðrar loftunar.
Ávinningur þinn:
Þú færð góða yfirsýn yfir hvernig eigi að bera sig að við smáar eða stórar breytingar á eldhúsi.
Hver er þinn smekkur og hvernig stemmingu viltu fanga?
Þarfagreining á eldhúsinu.
Þú öðlast betri skilning á því hvað þarf til að bæta aðstöðuna í eldhúsinu.
Leiðbeinandi: Emilía Borgþórsdóttir er iðnhönnuður. Hún starfaði í Bandaríkjunum við húsgagnahönnun og innanhússhönnun í nokkur ár þar til hún flutti heim til Íslands. Emilía starfar nú sem sjálfstæður hönnuður við fjölbreytt verkefni.
Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|