Á námskeiðinu er farið yfir ótal þætti er varða garðverkin í sumarbyrjun. Farið verður yfir hvaða trjágróður og runna þarf að snyrta meðan náttúran er enn í vetrardvala og hvenær tímabært sé að snyrta rósirnar og viðkvæmar plöntur. Hvernig á að hlúa að sígrænum gróðri svo nálarnar þorni ekki í vorsólinni. Farið er yfir upptöku og skiptingu fjölærra plantna sem orðnar eru frekar á plássið og hvenær tímabært sé að eiga við mosann í grasfletinum. Hvenær á að láta kartöflurnar spíra og á hvaða tíma byrjar maður að sá fyrir krydd, matjurtum og sumarblómunum. Einnig kennt hvernig eigi að bleikja rabarbarann. Auk alls þessa þá er farið yfir hvenær tímabært sé að koma vorlaukunum til, animónum, dalíum og fresíum sem fegra garðinn næsta sumar og ekki síst að hressa uppá garðhúsgöngin.
Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur og ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðsins.
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki og stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|