Glútenóþol og glútenofnæmi er tvennt ólíkt; einstaklingar sem eru með glútenofnæmi mega hvorki né geta borðað matvöru sem inniheldur glúten eða snefil af glúteni því að það getur verið þeim lífshættulegt - og þar liggur hinn stóri munur. Farið verður yfir þessa þætti auk þess sem farið verður yfir annarskonar óþol og ofnæmi, s.s. egg og mjólk. Bakað verður brauð, kökur og pizza úr glútenlausu hveiti
Leiðbeinandi: Ásta Búadóttir, matreiðslumeistari og kennari
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|---|---|---|---|---|---|
Glúteinóþol og ofnæmi bakstur - Dalvík | 31. mar | 17:00-20:00 | Grunnskólinn Dalvík | 23.900 kr. | Skráning | |
Glúteinóþol og ofnæmi bakstur - Ólafsfjörður | 01. apr | 17:00-20:00 | Grunnskólinn Ólafsfirði | 23.900 kr. | Skráning | |
Glúteinóþol og ofnæmi bakstur - Akureyri | 02. apr | 17:00-20:00 | Kennslueldhús Giljaskóla | 23.900 kr. | Skráning |