Á námskeiðinu verður fjallað um heilaheilsu og hvernig hugrænir þættir (s.s. einbeiting, athygli, minni, skipulagsfærni og félagsskilningur) hafa áhrif á okkar daglega líf. Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur (a) öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi, (b) öðlist betri innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika, (c) læri leiðir til að þjálfa hugann.
Hugræn geta á við um starfsemi heilans sem gerir okkur kleift að vera virk í daglegu lífi, s.s. heima, í vinnu og í samskiptum. Áhersla á heilaheilsu hefur aukist síðustu áratugina og rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi ýmissa leiða til að þjálfa heilann, s.s. hreyfingu, nám, fjölbreytt áhugamál og hugræna þjálfun. Hugræn þjálfun hefur víða verið rannsökuð og er nú í boði sem meðferð fyrir ýmsa hópa.
Á námskeiðinu er fjallað um:
• Heilaheilsu og hugræna þætti, s.s. einbeitingu, athygli, minni, félagsskilning og áhrif þeirra á daglegt líf.
• Leiðir til að auka innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika.
• Hugræna þjálfun.
• Hvernig á að útbúa þjálfunaráætlun til að bæta hugræna getu og meta árangurinn.
Ávinningur þinn:
• Aukinn skilningur á hugrænum þáttum og áhrifum þeirra á daglegt líf.
• Tækifæri til að fá nýja sýn á eigin færni og nýjar leiðir til að ná settum markmiðum.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja fræðast um heilaheilsu og leiðir til að þjálfa hugræna þætti á markvissan hátt.
Leiðbeinandi : Ólína G. Viðarsdóttir er með BA og kandidatspróf í sálfræði, auk þess að hafa lokið doktorsprófi í líf- og læknavísindum. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Ólína hugræna getu og áhrif hugrænnar endurhæfingar á hugræna getu, líðan og færni í daglegu lífi. Ólína starfar sem sálfræðingur á geðþjónustu Landspítala. Auk þess sinnir Ólína gestakennslu við Háskóla Íslands.
Tími: 16. og 23. febrúar frá kl. 17.00-20.00
Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|