Á námskeiðinu munu stjórnendur fá innsýn í eðli leiðbeinandi samtala og öðlast öryggi til að taka slík samtöl með nákvæmum leiðbeiningum. Einnig fá þeir tækifæri til að æfa sig á hvor öðrum með komandi samtöl í huga.
Lykilspurningar sem svarað verður á námskeiðinu:
Undirbúningur: Stjórnendur eru hvattir til að koma með raunveruleg dæmi um samtöl framundan eða fyrrum áskoranir. Stjórnendur rifja upp krefjandi samtöl sem að þeir hafa átt áður við sína starfsmenn og spyrja sig eftirfarandi spurninga:
Leiðbeinandi: Guðrún Snorradóttir PCC stjórnendamarkþjálfi. Guðrún byggir á 12 ára reynslu sem stjórnandi og þekkir heim stjórnandans frá fyrstu hendi. Hún hefur einnig reynslu af mannauðsstjórnun og hefur unnið með stjórnendum bæði innan einka- sem og opinbera geirans. Hennar sérsvið eru áskoranir í samskiptum innan vinnustaða ásamt fyrirbyggjandi aðgerðum með því að einblína á styrkleika, helgun, tilgang, þrautseigju og færni starfsmanna. Hún er með master í jákvæðri sálfræði og er vottaður PCC stjórnendamarkþjálfi frá ICF (International coaching federation, 700 tímar að baki). Guðrún er formaður félags um jákvæða sálfræði á Íslandi.
Athugið að starfsmenntasjóðirnir Sveitamennt og Ríkismennt greiða fyrir þátttöku almennra starfsmanna sveitarfélaga og stofnana þeirra sem eru aðilar að Sveitamennt og ríkisstofnana og sjálfseignastofnana sem eru aðilar að Ríkismennt. Þetta gildir um starfsmenn í Einingu Iðju.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð |
---|