Flokkur: Raunfærnimat
Raunfærnimat hjá SÍMEY er fyrir einstaklinga 23 ára og eldri sem hafa a.m.k þriggja ára starfsreynslu úr því starfi sem meta skal.
Af hverju raunfærnimat?
Að ljúka raunfærnimati getur:
-
stytt nám á ákveðnum brautum á framhaldsskólastigi (sjá neðar)
-
sýnt fram á starfsfærni á vinnumarkaði.
-
hjálpað fólki að hefja nám að nýju og/eða styrkja stöðu viðkomandi á vinnumarkaði.
Hvaða raunfærnimat er í boði?
- Ferðaþjónusta
- Matvælagreinar; matreiðsla, matartækni, matsveinn, framreiðsla
- Sjávarútvegur; fisktækni, netagerð, skipstjórn, vélstjórn
- Þjónustugreinarnar; félagsliði, leikskólaliði og stuðningsfulltrúi
- Sjúkraliði
- Verslunarfulltrúi
- Byggingargreinar; húsasmíði, múraraiðn, pípulagnir, málaraiðn
- Bílgreinar; bifvélavirkjun, bílamálun