Sparnaður og fjárfestingar - vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Mikilvægt er að huga vel að sparnaði, jafnt fyrir skammtímaútgjöldum sem og fjárfestingum í framtíð. Á námskeiðinu verður rætt um hvernig velja megi heppilegasta sparnaðar- eða fjárfestingarkostinn hverju sinni. 

Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru: 

  • Hverjir eru kostir og gallar innlána, verðbréfa og sjóða? 

  • Hvernig er best að skipta ólíkum sparnaði upp? 

  • Hvaða ávöxtunarleiðir henta við hinar ýmsu aðstæður? 

  • Hvernig byggi ég upp eignasafn? 

  • Hvað kemur til með að hafa áhrif á sparnaðinn minn og hvernig fylgist ég með? 

  • Hvernig næ ég markmiðum mínum í sparnaði? 

Fyrir hverja: Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri sem vill ná betri tökum á sparnaði sínum og fjárfestingum. 

Ávinningur þátttakenda: Þátttakendur kynnast ólíkum ávöxtunarleiðum og geta parað þær saman við markmiðin sín. Þannig næst betri árangur og mistökum fækkar. 

Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans. Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði. Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar.  

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi. 

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Sparnaður og fjárfestingar 13. nóv MIðvikudagur 17:00-19:00 Vefnámskeið á ZOOM 19.900 kr. Skráning