Okkar nálgun er sú að álagið í lífi okkar er ekki einvörðungu í tengslum við starfið heldur einnig lífið þess utan. Markmið okkar er að vekja athygli á þessu sívaxandi samfélagsmeini, auka ábyrgð starfsmanna sem og stjórnenda og draga úr veikindafjarveru.
Stuðst verður við klínískar sænskar rannsóknir og nýjustu þekkinguna í streitufræðunum.
Farið verður yfir muninn á streitu, kulnun og sjúklegri streitu? Þá verður þátttakendum gefin verkfæri til að greina streitu og kenndar rannsakaðar aðferðir henni til forvarnar og úrlausna. Greinarmunur verður gerður á því hvar ábyrgð starfsmanna liggur og hvernig starfsfólk getur aukið afköst sín án þess að auka við streituna. Fjallað verður um samskipti sem stuðla að vellíðan á vinnustað, leiðir sem auka afköst, sem og mikilvægi vinnustaðamenningar.
Kynnt verða ný hugtök úr streitufræðunum eins og til að mynda daghvíld á vinnustað. Farið verður í viðurkenndar aðferðir sem stuðla að slökun á vinnutíma. Fjallað verður um aðferðir sem stuðla að bættri tímastjórnun og forgangsröðun svo draga megi úr streitu og kulnun. Farið verður í tímaáætlanir og komið inn á algeng skipulagsforrit sem gagnast í daglegu lífi.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja fá betri yfirsýn yfir verkefnin sín, auka skipulagshæfni sína, draga úr streitu og stuðla að bættri forgangsröðun í starfi, námi eða daglegu lífi.
Dæmi um algengar spurningar sem svarað verður á námskeiðinu:
Leiðbeinandi: Helga Hrönn Óladóttir umdæmisstjóri Streituskólans og Streitumóttökunnar á Norðurlandi
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|