Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Efnistök eru eftirfarandi:
Öldrun skilgreind og gerð grein fyrir helstu kenningum um hana (þ.e. hvers vegna við eldumst).
Farið yfir helstu öldrunarbreytingar miðað við að heilsa haldist góð, sérstök áhersla á eðlilegar breytingar á vitrænni getu og starfsemi heilans.
Gerð grein fyrir helstu sál-félagslegu kenningum um öldrun, þ.á.m. kenningum um þroskastig ævinnar.
„Farsæl öldrun“ – hvað einkennir hana? Nokkrar hugmyndir ræddar.
Tilfinningalegar þarfir.
Samskipti og breytingar á þeim yfir tíma (yngstu/elstu í hópnum).
Nálægð dauðans.
Yfirlit yfir íslenska öldrunarþjónustu
Námskeiðið er góður undanfari námskeiðsins Mannréttindi aldraðra.
Leiðbeinandi: Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun.
Hvar og hvenær: 11 apríl kl. 14-16, vefnámskeið.
Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|