Uppleið - hugræn atferlismeðferð - vefnámskeið - FULLT

Flokkur: námskeið

Hér er um að ræða 40 klst nám sem byggt er á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. 

Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir.

Námið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra. 

Námið er samstarfverkefni SÍMEY og Farskólans, miðstöðvar símenntunnar á Norðulandi vestra

Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir Sálfræðingur hjá HSN.

Hvar og hvenær: Námið verður kennt á netinu í gegnum ZOOM.  Kennt verður tvö kvöld í viku í 12 skipti, þriðjudaga og fimmtudaga 18:00-20:00, hefst 1.október.

Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda.

Verð: 9.000.kr ef þátttakandi er í markhópi framhaldsfræðslunnar, en 55.000 kr. ef svo er ekki.
Markhópur framhaldsfræðslunnar er fólk sem ekki hefur lokið stúdentsprófi eða iðnmenntun.

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi. 

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð