Í upphafi skal endirinn skoða, þetta orðatiltæki á vel við þegar verið er að hanna hvort sem er fyrir prentun eða vefinn.
Þetta er stutt námskeið sem hentar vel fyrir alla sem eru að setja upp blöð, bækur og bæklinga eða að vinna efni fyrir vefsíður.
Farið verður yfir atriði sem skipta máli þegar sett er upp efni til prentunar eða fyrir vefinn á áhrifaríkan hátt.
Jafnframt verður fjallað stuttlega um prentaðferðir þ.e. offset og stafræna prentun, hvaða hugbúnað er æskilegt að nota, stillingar og skipulag.
Leiðbeinandi: Hermann Arason. Hermann hefur starfað við grafíska vinnslu frá árinu 1989. Á þessum árum sem liðin eru, hafa orðið miklar breytingar á faginu með tilkomu tölvanna. Hermann hefur brotið um fjölda bóka, tímarita og bæklinga og hefur mikla reynslu af slíkri vinnu.
Minnum umsækjendur á að kanna möguleika á fræðslustyrk sínu stéttarfélagi.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|