Bókasafnsheimsókn á Dalvík

Hópurinn uppstilltur í Bergi
Hópurinn uppstilltur í Bergi
Nemendur í íslensku fyrir útlendinga á Dalvík brugðu undir sig betri fætinum og skelltu sér á bókasafn.

Nú á haustönn eru 35 nemendur á íslenskunámskeiðum fyrir fólk af erlendum uppruna á Dalvík og er kennt í þremur hópum. Á meðfylgjandi mynd er byrjendahópurinn ásamt Guðnýju kennara. Myndin var tekin þegar hópurinn var í heimsókn í Menningarhúsinu Bergi og erindið var að kynnast starfsemi hússins. Á bókasafninu fengu allir afhent lánþegaskírteini sem gildir í eitt ár.

Ekki þarf að orðlengja það að við hjá Símey erum verulega stolt af þessum flotta hópi og ekki síður af mikilli þátttöku á námskeiðunum.