Mikil aðsókn var á námskeið sem haldið var að frumlagi tælenskra kvenna í Eyjafirði. Þær tóku sig saman og fengu búddhamunk til að koma til Akureyrar og kynna fyrir fólki inntak búddhatrúarinnar og helstu tækni í hugleiðslu.
Ákveðið var að bjóða upp á fleiri tíma og því mun hann verða áfram dagana 18. og 19. júní.
Allir eru boðnir velkomnir, bæði þeir sem sátu hitt námskeiðið sem og nýir þátttakendur.