SÍMEY og Theodóra Mjöll höfundur bókarinnar bjóða upp á námskeið í hárgreiðslum. Farið verður í einfaldar og flottar hárgreiðslur sem allir geta lært.
Hárið inniheldur uppskriftir af yfir 70 hárgreiðslum, allt frá venjulegu tagli yfir í árshátíðargreiðslur. Einnig er ýtarlegur kafli í byrjun bókarinnar þar sem öllum spurningum um hár og hárumhirðu er svarað.
Bókin „Hárið“ verður á sérstöku tilboði á námskeiðinu.
Tvö námskeið verða í boði sunnudaginn 2. desember kl. 12:00 og kl. 15:00
Námskeiðsgjald 5000 kr.
Skráning fer fram á heimasíðu SÍMEY, www.simey.is eða í síma 460-5720