Jenný Gunnarsdóttir verkefnastjóri Fjölmenntar

Jenný Gunnarsdóttir.
Jenný Gunnarsdóttir.

Jenný Gunnarsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá SÍMEY sem verkefnastjóri Fjölmenntar og einnig hefur hún á sinni könnu skipulagningu nýs tilraunaverkefnis á landsvísu fyrir fólk með skerta starfsgetu.

Jenný er uppalin á Dalvík en flutti á grunnskólaaldri til Akureyrar. Stúdentsprófi lauk hún frá MA. Að því loknu tók Jenný sér fjögurra ára hlé frá námi og fór út á vinnumarkaðinn, starfaði m.a. í ferðaþjónustu, á sambýlum og í skammtímavistun fyrir fólk með fötlun. Síðan lá leiðin til Lundar í Svíþjóð þar sem Jenný lærði kynjafræði og sálfræði til BA-prófs. Hélt að því loknu áfram námi í Lundi og lauk meistarapróf í stjórnun. Árið 2020 flutti hún aftur heim til Akureyrar og bætti við sig námi í menntunarfræðum til kennsluréttinda við HA og starfaði jafnframt við íbúakjarnann á Klettaborg. Síðustu árin hefur Jenný starfað sem kennari og við fræðslu hjá SÍMEY og Heilsu- og sálfræðiþjónustunni. Auk 50% stöðu í SÍMEY kennir hún ýmis fög á sviði félagsvísinda í afleysingum við Menntaskólann á Akureyri.

Jenný segir að áralöng reynsla sín í vinnu með fólki með fötlun nýtist sér afar vel í hinu nýja starfi í SÍMEY við skipulagningu og umsjón með námskeiðahaldi Fjölmenntar.

„Það á eftir að koma í ljós hversu margir nýta sér það sem við komum til með að bjóða upp á í vetur en ætlun okkar er að opna fyrir skráningar í þessari viku og námskeiðin hefjist síðan þegar líður á þennan mánuð. Við bjóðum upp á ýmis námskeið sem áður hafa verið í boði eins og t.d. myndlist, tónlist og matreiðslu en einnig verða ýmsar nýjungar eins og t.d. námskeið í hreyfingu og jóga og ætlun okkar er að bjóða upp á fleiri nýjungar sem við munum kynna betur síðar,“ segir Jenný og bætir við að það sé afar gefandi að vinna með fólki með fötlun, það víkki sjóndeildarhringinn á ýmsan hátt.

Auk þess að hafa með höndum verkefnastjórn Fjölmenntar í SÍMEY heldur Jenný utan um nýtt þróunarverkefni á landsvísu, sem er samstarfsverkefni Fjölmenntar, Vinnumálastofnunar og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Verkefnið hefur það að markmiði að styrkja stöðu fólks sem hefur skerta starfshæfni með fræðslu og vinnuþjálfun. Í verkefninu taka þátt símenntunarmiðstöðvar um allt land og munu þær starfrækja smiðjur í því skyni að efla þátttöku fólks á atvinnumarkaði. Á næstu dögum mun SÍMEY ýta slíkri smiðju úr vör með tæplega tug þátttakenda, sem verður starfrækt fram í byrjun desember. Bæði verður um að ræða fræðslu af ýmsum toga, t.d. varðandi almenna starfshæfni, vinnustaðamenningu, sjálfseflingu, samskipti, tímastjórnun og verkdagbækur, og 110 vinnustunda starfsþjálfun á vinnustöðum, t.d. í lagervinnu, vinnu við þrif og ræstingu, umönnun og ferðaþjónustu.