Nemendur Fjölmenntar gefa Akureyrabæ listaverkið „Ég kemst“

Nemendur Fjölmenntar gefa listaverk
Nemendur Fjölmenntar gefa listaverk

Nemendur á námskeiðinu Leikfangasmíð afhentu bæjarstjóra Akureyrar, Eiríki Birni Björgvinssyni, listaverkið „Ég kemst“ í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins nú í ár.

Verkið unnu nemendur í samstarfi við Brynhildi Kristinsdóttur. Það á að minna okkur á að ef við setjum okkur raunhæf markmið, tökum eitt skref í einu og vöndum okkur þá komumst við þangað sem við ætlum okkur.