Skráning hafin á námskeið Fjölmenntar

Opið er fyrir skráningar á námskeið Fjölmenntar - fullorðinsfræðslu fatlaðra hjá Símey.

Í haust verða í boði ýmis gamalkunn námskeið, svo sem myndlist, hagnýtt heimilishald og tónlist, en einnig eru nýjungar á borð við styttri matreiðslunámskeið og námskeið í rólegri hreyfingu sem hentar öllum.

Skráning og nánari upplýsingar hér