Starfsmenn grunnskólana á námskeiði hjá SÍMEY

Að verða hluti af heild
Að verða hluti af heild

Þriðja árið í röð tekur SÍMEY þátt í sí- og endurmenntun annarra starfsmanna grunnskóla Akureyrar með námskeiðinu Að verða hluti af heild. Mikil ánægja hefur verið með þetta námskeið og má segja að það sé orðið hluti af starfsdögum grunnskólanna.

Tilgangurinn með námskeiðinu er að efla og hvetja starfsmenn í kröfuhörðum störfum fyrir komandi vetur. Það er von og trú allra sem að þessu verkefni  koma að vel takist til og skili þátttakendum uppbyggilegri fræðslu sem hægt er að nýta í starfi. Um er það ögrandi verkefni fyrir starfsmenn SÍMEY að taka á móti svo kraftmiklum hópi starfsmanna Akureyrarbæjar í sí-og endurmenntun.

Í þetta sinn taka 120 starfsmenn þátt í 15 klukkustunda námskeiði þar sem meðal annars er fjallað um ADHD, fíkniefni og einkenni neyslu, lesblindu, þjónustu og líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Leiðbeinendur á námskeiðunum hafa allir mikla reynslu á sínu sviði. Öllum þátttakendur býðst að sækja viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa til að skoða frekari möguleika til sí- og endurmenntunar að námskeiði loknu.Örn Árnason

Námskeiðið styrkja Mannauðssjóður Kjalar og Sveitamennt  starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni.