Jólakrans

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Athugið þetta námskeið er haldið sameiginlega með stéttarfélögum á svæðinu og því verða ekki eingöngu starfsmenn HSN á námskeiðinu. 

Verklegt námskeið um kransa og kransagerð þar sem þátttakendur læra að vefja sinn eiginn jólakrans.  

Á námskeiðinu verður fræðsla um blómakransa í gegnum tíðina.  Kennd verða undirstöðuatriði og tækni við að vefja krans í fallegt handverk. Þátttakendur fá aðstoð og kennslu við að binda sinn eigin krans og verða fær um að gera sína eigin kransa. 

Hráefni í krans er innifalið í námskeiðinu og þátttakendur fara heim með sinn krans í lok námskeiðs. 

Leiðbeinandi: Alma Lilja Ævarsdóttir blómahönnuður og eigandi blómaverkstæðisins Salvíu. 

Lengd: 2-3 tíma námskeið 

Hvar og hvenær:  

  • 19. nóv Sauðárkrókur 19-21 

  • 20. nóv Blönduós 19-21 

  • 19.nóv Akureyri 17-19 

  • 20. nóv Dalvík 17-19 

  • 21. nóv Fjallabyggð 17-19 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Jólakrans 19. nóv Þriðjudagur 17.00-19.00 SÍMEY, Þórsstígur 4 Skráning
Jólakrans 20. nóv Miðvikudagur 17.00-19.00 Víkurröst Dalvík Skráning
Jólakrans 21. nóv Fimmtudagur 17.00-19.00 Siglufjörður Skráning